156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:30]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Eins og glöggir sjá þá er ég nú ekki stór maður en ég skal samt glöð hafa vit fyrir meiri hlutanum hér á Alþingi. Mér er það bæði ljúft og skylt, ekki síst þegar hv. þingmenn koma hér upp og fara vísvitandi með rangfærslur eins og hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar gerði rétt í þessu. Síðan þetta þing hófst, þetta örstutta þing, þá höfum við klárað 40 mál, þar af 14 mál síðan umræða um veiðigjöldin hófst. Þarf ég að minna meiri hlutann á Alþingi, almenning og gestina okkar, á það hver það er sem heldur á dagskrárvaldinu hér á Alþingi, hver það er sem ákveður hvaða mál komast á dagskrá og hvaða mál gera það ekki?