minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Frú forseti. Mikið var ég glaður að heyra í hæstv. forsætisráðherra áðan. Hún lýsti því hér yfir að það væri samningsvilji, það væri samningsvilji. Af hverju reynir hún nú ekki að virkja þann samningsvilja? Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson, hvernig má það vera að þú umgangist sannleikann af slíkri léttúð að þú segir alltaf eina hlið á málum hér uppi í pontu varðandi samningaviðræður við aðra þingflokksformenn? Og það svarar enginn á móti. Af hverju heldurðu að það sé? Það er vegna þess að það á að ríkja trúnaður um samskipti þessara aðila. Trúnaður verður ekki til nema menn haldi a.m.k. þann trúnað á milli þessara þriggja einstaklinga. Það getur ekki orðið og ég skora á hv. þingmann að umgangast betur sannleikann í þessu máli.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á að tala til forseta en ekki til einstakra hv. þingmanna.)