156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:34]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég kem hérna upp til þess að taka eindregið undir orð hæstv. forsætisráðherra. Það er ríkur samningsvilji af okkar hálfu í ríkisstjórninni til að ljúka þessu þingi með sóma. Það sem við höfum verið að leggja áherslu á eru dagsetningarmál og líka á þá staðreynd að klára til að mynda strandveiðarnar á miðvikudaginn. Við höfum viljað, og við höfum sagt að það er einlægur vilji okkar í ríkisstjórninni, að það mál verði klárað þannig að strandveiðisjómenn geti haldið áfram á veiðum. Þetta er málið sem þetta snýst allt um. [Framíköll í þingsal.] Við erum meira en reiðubúin til þess. Það er verið að tala um dagskrárvaldið hér. Við erum að tala um einlægan vilja til þess að setja þau mál sem stjórnarandstaðan hefur m.a. samþykkt — við höfum m.a. bent á að tíminn er að renna út í umhverfinu, í þeim veruleika sem til að mynda strandveiðisjómenn búa við. Það er þetta sem við höfum viljað. En meðan stjórnarandstaðan vill ekki fá þetta á dagskrá þá erum við líka reiðubúin til að tala … [Framíköll í þingsal.] (Forseti hringir.) Við erum reiðubúin til að tala við hv. stjórnarandstöðu um þessi mál og ég vona, miðað við þau viðbrögð sem ég er að fá, að hún setjist niður með okkur og tali við okkur um þessi fáu mál sem ég held að við getum komið okkur saman um og ég hvet ykkur til þess að mæta okkur með opinn huga.