minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Virðulegur forseti. Það virðist vera sem hv. þingflokksformanni Samfylkingarinnar, Guðmundi Ara Sigurjónssyni, sé algerlega fyrirmunað að átta sig á því að það er meiri hlutinn hér á þingi sem setur dagskrárvaldið. Eins og fram hefur komið og er ágætt að fara yfir aftur þá fóru, á meðan þetta Íslandsmet var slegið, 14 mál í gegn þegar þau voru sett á dagskrá þannig að það stóð ekki á stjórnarandstöðunni, hún stóð ekki í vegi fyrir þeim málum. En, virðulegur forseti, ég vona að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins komi hér og svari fyrir það hvort hún sé sammála orðum hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, hennar flokksmanns, að hér eigi að beita aftur 71. gr. og hvort það sé bara orðið lenskan hjá hæstv. ríkisstjórn að þessari grein verði beitt í tíma og ótíma. (Forseti hringir.) Það verði bara eins og hvert annað atriði hér á þinginu að beita kjarnorkuákvæðinu.