156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:39]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það er vont að fólk undir álagi geti ekki haldið virðingu í samskiptum sínum, hvort sem það er að tala við aðra þingmenn hér í sal eða hæstv. ráðherra. Ég vil hvetja þingheim allan til þess að sýna, þrátt fyrir að vera hugsanlega í ákveðnu uppnámi hér í dag, áfram virðingu í samskiptum og vera þinginu til sóma. Ásakanir um trúnaðarbrest þegar upplýst er um okkar samningsmarkmið — ég gef lítið fyrir slíkan málflutning. Það liggur fyrir að auk þeirra mála sem við fjöllum um hér í dag eru ákveðin dagskrármál sem við teljum mikilvægt að ljúka áður en þessu þingi lýkur. En talandi um dagskrárvaldið þá liggur það líka fyrir að hér hefur verið opnað á fjöldann allan af málum en fá hafa komist í gegn vegna þess að stjórnarandstaðan hefur ekki viljað hleypa þeim í gegn. Til dæmis kemur hér hv. þm. Vilhjálmur Árnason og segir okkur að setja strandveiðifrumvarpið á dagskrá. Það frumvarp var á dagskrá í síðustu viku, var rætt í á milli fimm til sex klukkutíma en enn þá er þar myndarleg mælendaskrá minni hlutans (Forseti hringir.) sem ekki vildi klára málið. Ég hvet okkur að lokum til að sýna stillingu. Við erum tilbúin í samtal um þinglok (Forseti hringir.) líkt og við höfum verið síðastliðnar þrjár, fjórar vikur. Ef minni hlutinn er tilbúinn í það samtal þá er sjálfsagt að verða við því.