156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:40]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Ágætu þingmenn, tónið niður talsmátann. Fólkið í landinu er að hlusta á ykkur. Eru þetta skilaboðin út í samfélagið? Við skulum aðeins hugsa okkar gang. Það kemur fram hérna minnisblað sem enginn vissi af. Ég veit ekkert um þetta minnisblað. Ég ætla ekki að gera mikið úr því eða lítið úr því. Það setur auðvitað hlutina í sérstakt ljós en ég ætla ekkert að dæma það neitt. Ég hélt að við værum að ná saman um þinglok. Hér kemur hver þingmaðurinn og ráðherrann á fætur annarri og öðrum og blaðra öllu sem menn eru búnir að vera að ræða um hérna. Hvar er ég staddur? Þarf að fara að leysa hér upp samkomuna? Við berum ábyrgð á að klára þingið. (Forseti hringir.) Þið berið skyldu til þess, axlið þá ábyrgð.