156. löggjafarþing — 87. fundur,  12. júlí 2025.

minnisblað um 71. gr. þingskapa.

[16:43]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vona að þjóðin geri sér grein fyrir því hvað gerðist hér í gær, hverju var beitt. Málfrelsið var tekið af minni hlutanum. Þetta er eins og að fá hnefahögg í andlitið, að málfrelsið sé tekið af okkur. Svo daginn eftir er komið og beðið um að maður kyssi hnefann, það eru allir tilbúnir núna. Þetta minnir bara á ofbeldissamband; mönnum er stillt upp við vegg, svo kemur gusan og daginn eftir eru menn tilbúnir í þetta. Auðvitað vill minni hlutinn semja og hefur alltaf viljað, en munurinn á okkur og meiri hlutanum er sá að það var enginn vilji hjá minni hlutanum og þetta minnisblað gefur glögg merki um það, algjörlega. Þannig að vera að tala hér eins og hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson, sem fer með fleipur, að menn hafi ekki viljað hleypa neinum málum í gegn — það fóru 14 mál í gegn á meðan málið var til umfjöllunar og 40 mál í heildina. Eru þetta (Forseti hringir.) núll mál? Hvernig væri einhvern tíma í stað þess að koma hingað með hroka og yfirlæti í pontu (Forseti hringir.) að bara viðurkenna hlutina? Það er kominn tími til.