minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Frú forseti. Þegar maður heldur að vitleysan geti ekki orðið meiri þá versnar hún. Hingað kemur hæstv. utanríkisráðherra og talar um að ljúka þinginu með sóma og bendir á stjórnarandstöðuna. Margur heldur nú mig sig. Hér hafa verstu orðin og mestu gífuryrðin verið sögð af ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Talað um valdarán — valdarán. Talað um að hér sé bara stjórnarandstaðan eins og rakkar í bandi. Að það eigi að fara með fólk hér út undir húsvegg. Hvar er sómi ykkar, hæstv. ríkisstjórn? Og þegar er talað um að minni hlutinn komi í veg fyrir það að hér sé hægt að ljúka þinglokasamningum verð ég í enn eitt sinn að minna stjórnarmeirihlutann á það að hann fer með dagskrárvaldið í þessu húsi og í fyrsta sinn (Forseti hringir.) í 66 ár hefur forsætisráðherra í lýðveldinu ekki tekist að ljúka (Forseti hringir.) þinglokasamningum. Ég held og ætla að minna á það, (Forseti hringir.) hér eru strandveiðisjómenn, að frumvarpið sem var eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar, að leyfa strandveiðar, (Forseti hringir.) var tekið út úr nefnd 26. júní. Þetta hefur aldrei verið forgangsmál (Forseti hringir.) þessarar ríkisstjórnar og það mun ekki koma mér á óvart þó að ríkisstjórnin muni setja neyðarlög (Forseti hringir.) til að leyfa strandveiðar hér á næstu dögum miðað við vinnulag þessarar ríkisstjórnar.
(Forseti (KÁB): Enn og aftur er minnt á að virða ræðutímann.)