minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Frú forseti. Allt er þetta orðið hin mesta furða og verður sífellt furðulegra með hverjum deginum og raunar hverri klukkustundinni. Hæstv. forsætisráðherra tókst ekki að ljúka þingstörfum, tókst ekki að semja um þinglok eins og forverar hennar hafa gert áratugum saman og beitti því sem stundum er kallað kjarnorkuákvæði til að binda enda á þingstörfin en það dugði ekki til. Hæstv. forsætisráðherra, Kristrúnu Frostadóttur, Trump okkar Íslendinga, tekst ekki að ljúka þingstörfum, og þó, frú forseti, verð ég að gæta sanngirni gagnvart Bandaríkjaforseta. Hann er nýbúinn að koma í gegn stærsta frumvarpinu sínu en gerði það eftir marga sólarhringa af samtölum við þingmenn til að reyna að miðla málum (Forseti hringir.) og semja um framgang málsins. Því er ekki fyrir að fara hjá hæstv. forsætisráðherra Íslands.
(Forseti (KÁB): Forseti verður að minna hv. þingmann á að gæta orða sinna af háttvísi hér í ræðustól. (SDG: Fundarstjórn.)Við erum í fundarstjórn. Þingmaðurinn getur farið aftur á mælendaskrá ef hann hefur ekki lokið tveimur umferðum.)