minnisblað um 71. gr. þingskapa.
Virðulegi forseti. Mér finnst ekki mikill sómi að því að hér gera sumir stjórnarandstæðingar sér sérstakt far um að sparka í forsætisráðherra og vísa um leið til fyrri tíma. Hér á síðasta kjörtímabili glímdum við í stjórnarandstöðunni þá við ríkisstjórn sem eyddi mestum kröftum í það að reyna að ná sátt um innbyrðis. Út á það gekk helst vinna og vilji þáverandi forsætisráðherra. Það breytir ekki því, kæru vinir, að við þurfum að halda áfram. Við þurfum að tala saman og ég undirstrika ríkan vilja okkar til að ná saman um þinglok. Ég undirstrika það af einlægni, af heiðarleika og ég vona að við getum, hvort sem það eru formenn eða þingflokksformenn, hist fyrr en síðar til þess að fara yfir þessi mál. Það er eðlilegt. Við erum öll hér inni af hugsjón. Við erum öll hér inni af ákveðinni ástæðu, að vinna fyrir fólkið í landinu. Þá ber okkur líka skylda til þess, sama hversu erfitt það er og sárindin eru mikil, að setjast niður og ræða málin og finna lausn á þessari stöðu sem við erum komin í.