veiðigjald.
Virðulegi forseti. Það eru viðsjárverðir tímar á Alþingi. Undanfarna daga höfum við orðið vitni að atburðum sem verða skráðir í sögubækurnar en því miður ekki sem dæmi um styrk lýðræðisins heldur veikleika þess. Á föstudag beitti ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur 71. gr. þingskapalaga, svokölluðu kjarnorkuákvæði, til þess að þagga niður í stjórnarandstöðunni og ljúka umræðum um veiðigjaldafrumvarp sem hefur frá upphafi verið illa ígrundað, illa undirbúið og harðlega gagnrýnt af hagaðilum. Reitt var hátt til höggs til þess eins að hækka skatta á atvinnulíf og byggðir landsins. Svo dýrt var ríkisstjórninni að hlusta á skoðanir annarra að hún kaus að leggja þingræðið sjálft að veði. Þessu ákvæði hefur aðeins verið beitt í tveimur afdrifaríkum og sögulegum tilvikum á lýðveldistímanum; vegna inngöngu Íslands í NATO árið 1949 og árið 1959 til að afstýra því að öll starfsemi hins opinbera myndi stöðvast. Á föstudag var það notað til að koma illa undirbúnu skattamáli í gegn. Það segir allt sem segja þarf um stjórnarhætti hæstv. forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur og ríkisstjórnar hennar.
Virðulegi forseti. Við í Sjálfstæðisflokknum höfum talað af yfirvegun og ábyrgð. Við höfum rætt þetta frumvarp með skýrri sannfæringu og á þeim grunni sem við höfum alltaf staðið á, að skattheimta skuli vera sanngjörn og fyrirsjáanleg, að stjórnsýsla skuli vera vönduð, að verðmætasköpun sé undirstaða velferðar. Við höfum ekki talað til að kæfa umræður heldur til að reyna að bæta málið. Við höfum ekki talað af þrýstingi hagsmunaaðila eða í umboði einhvers annars en kjósenda okkar, eins og hv. ríkisstjórn hefur vænt okkur um og beinlínis logið um í fjölmiðlum síðustu daga. Við höfum einungis talað af pólitískri sannfæringu um hvað er rétt. Frumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ekki grein fyrir áhrifum á sveitarfélög. Það tekur ekki mið af raunveruleikanum í atvinnulífinu. Frumvarpið er ekki vandaðra en það er vegna þess að ríkisstjórnin hefur ekki viljað hafa það vandaðra en það er, svo einfalt er það. Við höfum boðið samtal, við höfum kallað eftir því að tekið sé mark á umsögnum, að hlustað sé á byggðirnar, að hlustað sé á atvinnulífið, á stofnanirnar og sérfræðingana. En ríkisstjórnin lokaði eyrunum og valdi valdbeitingu í stað umræðu.
Frú forseti. Það sem gerðist á föstudaginn var ekki tilviljun. Það var ekki stundarbrjálæði. Nú liggur fyrir að ríkisstjórnin hafði undir höndum minnisblað um beitingu 71. gr. strax 7. maí, tveimur dögum eftir að 1. umræða um frumvarpið hófst. Það er erfitt að sjá það öðruvísi en svo að ríkisstjórnin hafi ætlað sér að leyfa umræðunni að þróast, mála stjórnarandstöðuna upp sem varðhunda stórútgerðar og sérhagsmuna og þröngva svo málinu í gegn með valdi. Það sem virtist hafa verið lýðræðisleg umræða reyndist í raun sviðsett framvinda. Það sannaðist endanlega eftir að kjarnorkuákvæðinu hafði verið beitt. Þá birtist allt í einu breytingartillaga meiri hlutans, matreidd sem einhvers konar sátt við hagaðila. En þetta var engin sátt. Morguninn eftir gagnrýndu Samtök sjávarútvegssveitarfélaga þessa tillögu harðlega. Það sem átti að sýna samráð með hagsmunaaðilum afhjúpaðist sem sýndarmennska. Þetta staðfestir það sem við höfum sagt: Ríkisstjórnin hafði engan raunverulegan samningsvilja. Hún vildi fá andstæðinginn til að þegja, ekki til að tala, og þegar það tókst ekki með samningum var gripið til valdboðs.
Frú forseti. Í dag blasir við þjóðinni ríkisstjórn sem notar lýðræðislegt yfirbragð til að réttlæta atlögu að lýðræðinu, ríkisstjórn sem talar um vernd lýðræðisins á meðan hún beitir ákvæðum sem þagga niður í kjörnum fulltrúum, ríkisstjórn sem segist berjast fyrir Ísland en lýsir stjórnarandstæðingum, stjórnarandstöðunni sem andstæðingum þjóðarinnar. Það er ekki styrkur að beita valdi í stað samráðs. Það er veikleiki og saga lýðræðisins kennir okkur að það eru ekki stórar ákvarðanir sem veikja lýðræðið mest heldur litlu ítrekuðu skrefin í átt að þöggun og útilokun. Leiðin að harðræði er vörðuð litlum ákvörðunum teknum af fólki sem sannfærir sjálft sig um að tilgangurinn helgi meðalið.
Frú forseti. Sjálfstæðisflokkurinn hefur talað með ábyrgð, staðið með gildum sínum og neitað að þegja þegar grundvallaratriði eru í húfi. Við höfum ekki flúið umræðuna heldur krafist þess að hún fari fram af heilindum. En það sem hér hefur átt sér stað er ekki lengur umræða. Þetta er sviðsetning, leikrit sem sett var upp af ríkisstjórn sem hafði í hyggju að þröngva í gegn eigin niðurstöðu frá upphafi. Af þeim sökum hefur Sjálfstæðisflokkurinn lokið máli sínu í þessu máli. Það var þeirra ákvörðun og hún verður því miður ekki dregin til baka.