fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það er áberandi með þessa fjármálaáætlun sem við höfum verið að ræða hér undanfarna daga, undanfarnar vikur, kom óvenjuseint fram eins og við þekkjum, hún kom hreinlega fram — nefndarálitin komu fram eftir að starfsáætlun þingsins hefði átt að ljúka. Það er nú það sem við höfum verið að vinna með í þessu máli. Fjármálaáætlun er veik, hún er á veikum grunni byggð. Það er öllum ljóst að hún mun ekki standast. Áætlanir um að hér verði heildarjöfnuður árið 2027 eins og hefur verið talað um mun ekki standast. Allar forsendur á bak við fjármálaáætlun eru brostnar nú þegar í þeim viðbótum og tölum sem hafa komið fram í aukin útgjöld. Ég held að okkur sé það öllum ljóst. Þannig hefur málið þróast hér í þinginu.
Það eru breytt vinnubrögð í kringum fjármálaáætlunina, aginn og festan hefur minnkað. Nú er búið að færa mælikvarðana yfir í svokallaðar ársskýrslur ráðherra sem yfirleitt koma yfir sumartímann og hafa ekki fengið hingað til neina efnislega umfjöllun í störfum þingsins. Þetta er slæm breyting og þetta sjáum við í framlagðri fjármálaáætlun, í plagginu. Það er verulegur munur á því sem hefur verið unnið með hingað til í tengslum við lög um opinber fjármál sem voru sett í desember 2015 í þinginu og hafa verið í gildi í rúm tíu ár. Þetta er afturför sem er boðuð með þessu.
Það er margt sem vantar upp á. Sjáum til hvað gerist í fjárlögunum í haust þegar þau verða síðan tekin, eins og með að hægt sé að fara með lífeyrissparnað inn á húsnæðislán. Ég hef ekki orðið var við neitt í þessari umræðu þar sem kemur fram að það eigi að halda áfram með það og leyfa það aftur. Núverandi fyrirkomulag gildir til áramóta. Reyndar er enn þá í gildi það sem er fyrir fyrstu kaupendur til tíu ára, en þessi ráðstöfun á sínum tíma, að gefa fólki kost á að fara með séreignarsjóðinn og borga inn á fasteignalán, hefur sjálfsagt verið ein besta ráðstöfun fyrir heimilin í landinu sem höfum séð um árabil. Þess vegna verður spennandi að sjá, fyrst þetta er ekki inni í þessari fjármálaáætlun, hvort það komi inn í fjárlögin í haust.
Það er gríðarlega mikilvægt atriði á Íslandi að halda í séreignarleiðina, að fólk eigi sitt húsnæði. Það hefur verið sérstaða íslensks samfélags að það sé boðið upp á og að það sé kostur. Við viljum ekki fara að líkjast öðrum samfélögum í Evrópu t.d. þar sem fólk á ekki sínar eignir með sama hætti og við þekkjum hér. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að það komi inn í fjárlögin og ég vonast til að sjá einhver merki um að það verði hægt áfram að nýta séreignarsparnaðinn í að greiða inn á fasteignalán og það komi fram þá í fjárlögunum. Það ætti náttúrlega vera hér í þessu plaggi um fjármálaáætlun og er kannski miklu stærra mál heldur en ég held að þingheimur átti sig almennt á meðal almennings sem er að reyna að eiga eigið fé í sínum íbúðum og borga niður skuldir. Það er klárlega eitt af því sem er mikilvægt.
Frú forseti. Í grunninn er þessi fjármálaáætlun vanbúin, það er ekki staðið vel að verki. Ég hef enga trú á að hún muni ganga eftir. Heildarjöfnuður mun ekki nást á þessu kjörtímabili. Það þarf að gera miklu betur í vinnslu á þessu plaggi svo að það sé sá agi og festa í ríkisfjármálunum sem við viljum sjá í fjármálaáætlun.