156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[11:02]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða grunninn að öllu því sem við gerum. „Ég á þetta, ég má þetta“-ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur lét það verða eitt af sínum fyrstu verkum að fara ekki að lögum um opinber fjármál og það er miklu alvarlegra heldur en kannski fólk gerir sér grein fyrir. Þau breyttu líka verklaginu sem gerði það að verkum að sá faglegi hópur sem á að fara yfir þetta skrifar í sinni umsögn að þetta nýja verklag geri fjármálaráði erfiðara fyrir en áður að uppfylla lögbundið hlutverk sitt — svo maður vitni, með leyfi forseta, beint í álitið.

Þegar fjármálastefna og fjármálaáætlun voru lagðar fram saman þá var það þvert gegn lögunum vegna þess að það á fyrst að samþykkja fjármálastefnu og fjármálastefnan á að samþykkja fjármálaáætlunina og á grunni fjármálaáætlunar á að samþykkja fjárlögin.

Virðulegi forseti. Það var mikil flugeldasýning þegar menn ætluðu að ná hallalausum fjárlögum 2027. Það liggur fyrir eftir meðferð hv. fjárlaganefndar að það verður ekki. Þrátt fyrir að menn hafi tekið 3 milljarða á hverju ári úr varasjóði, sem er bara að pissa í skóinn sinn, þá liggur fyrir að það verður halli árið 2027. Samt sem áður er ekki gert ráð fyrir því að setja jöfnunarframlag í lífeyrissjóð, sem segir í meirihlutaálitinu að menn ætli að gera, en það eru um 4 milljarðar á ári. Ef menn ætla að fylgja því eftir þá er 2028 líka farið í halla.

Síðan segir líka skýrt í meirihlutaáliti hv. fjárlaganefndar að það eigi að setja 77 milljarða í varnarmál á ári. Það er mun hærri upphæð en við setjum í samgöngur og fjarskipti. Bara til að setja það í samhengi við Landhelgisgæsluna er hún með 7,5 milljarða núna í útgjöld. Það er ekki gert ráð fyrir einni krónu í þetta í fjármálaáætluninni. Alveg sama hvernig við ætlum að fara í það þá liggur fyrir að það verður enginn afgangur á þessum tíma.

Þó svo að það hafi verið ótrúlega lítil umræða um þessa fjármálaáætlun, og mikil breyting á henni samt í meðförum hv. fjárlaganefndar, þá getum við stutt okkur við að ef við miðum við það sem við höfum best, sem er umsögn fjármálaráðs, þá segir á bls. 4, með leyfi forseta, að ef menn ætla að halda áfram með sama hraða að lækka skuldir — en það á ekki að lækka skuldir á þessu kjörtímabili, bara með sama hraða, sem gengur í rauninni út á að bjartsýnar efnahagsforsendur muni gera það að verkum að hlutfallslega lækki skuldirnar — þá munum við ná skuldaviðmiðunum 2050. Ef hins vegar næsta ríkisstjórn, ekki þessi, fer að herða á skrúfunum þá náum við því hugsanlega 2037. Þetta er að vísu löngu áður en ÍL-sjóður kemur inn. Það hefur ekkert verið metið af fjármálaráði hvaða áhrif það hefur en það er stóraukning á skuldum og við erum ekki að sjá neinar áætlanir um hvernig við getum náð því til baka eða lækkað þær skuldir því að það er ekki gert ráð fyrir því að lækka skuldir neitt. Með öðrum orðum: Menn eru ekki að ná endum saman miðað við þessa fjármálaáætlun og menn eru svo sannarlega ekki að lækka skuldir og miðað við þær áætlanir sem liggja fyrir sjáum við að það er í lengstu framtíð.

Varðandi skattana þá segir fjármálaráð sérstaklega að það sé mikilvægt, og er að vísa í auðlindagjald af ferðamönnum og sömuleiðis svo sannarlega þennan hækkaða sjávarútvegsskatt, að útskýra hvort og þá hvernig menn ætli að ná þjóðhagslegum ábata af þessu. Ég bara vek athygli á því, virðulegur forseti, að það er gríðarlega alvarlegt mál hvernig hæstv. ríkisstjórn hefur haldið á þessu. Við skulum ekki gleyma því að þeir sem halda hér um stjórnvölinn eru flokkarnir sem halda um fjármál Reykjavíkurborgar og þeir flokkar mega ekki sjá fjármálareglu án þess að vilja brjóta hana. Það er alveg ljóst, virðulegi forseti, þó svo að það hafi verið lítið rætt hér, því að það var ákvörðun ríkisstjórnar að gera það ekki og taka ekki þátt í umræðunni, að ríkisfjármálin eiga sér ekki viðreisnar von undir forystu þessarar ríkisstjórnar.

Virðulegi forseti. Ríkisfjármálin eiga sér ekki viðreisnar von miðað við þá áætlun sem hér liggur fyrir og hæstv. ríkisstjórn ætlar að samþykkja.