156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[11:23]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér erum við að tala um nokkuð stórt og viðamikið mál, Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Það hefur nú oft verið talað um að það séu fáir á Íslandi sem skilji í heildina hvernig jöfnunarsjóðurinn virkar. En eins og nafnið gefur til kynna var hann stofnaður til að jafna tekjur eftir aðstæðum á milli sveitarfélaga en síðan þá hefur hann þróast töluvert yfir í að vera viss greiðsluleið fyrir þjónustu sem er flutt frá ríkinu til sveitarfélaganna eins og málefni grunnskólans og málefni fatlaðra og annað slíkt. Það fer þarna í gegn og eru þá reiknaðar út greiðslur til hvers sveitarfélags eftir þyngd þessarar þjónustu og annað slíkt. Hér erum við að setja heildarlög þar sem eru vissar stilliskrúfur og hefur verið kallað eftir lengi og mörg sveitarfélög bíða eftir þessu máli. Ég held að það sé margt gott í því þó að annað sé kannski eitthvað sem er alltaf hægt að skoða betur og sumum sveitarfélögum finnst ekki alveg sanngjarnt enn þá. Við verðum að vera vakandi fyrir því og sjá hvernig það fer.

Ég hefði talið heppilegt og það hefði kannski sýnt aðeins betur hina raunverulegu stöðu ef frumvarp sem hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur boðað um að afnema afslætti fasteignagjalda á orkumannvirki hefði verið komið inn. Það hefði getað breytt töluvert þeim tölum sem sjást í útreikningunum núna. En ég bendi á að tölurnar sem sveitarfélögin horfa til núna miða við forsendur eins og eru núna og getur margt breyst á milli, svo það sé sagt.

Það voru nokkrar athugasemdir sem ég hafði við þetta frumvarp þegar það kom fyrst fram. Kannski ber þar helst og fyrst að nefna að þegar þessar stilliskrúfur, eins og ég hef oft kosið að kalla þetta, eru settar og reiknað út hvað eigi að borga sveitarfélögunum fyrir þjónustuna, þá hefur alltaf verið miðað við að þau myndu fullnýta þá tekjumöguleika sem þau hafa, alltaf miðað við fullnýtta tekjumöguleika, hvort sem sveitarfélögin séu að fullnýta þá eða ekki. Því kemur það algerlega eins og skrattinn úr sauðarleggnum að vera að refsa sveitarfélögunum fyrir góðan rekstur, að ef þau vilja ráða sínum málum sjálf eins og stjórnarskráin gerir ráð fyrir og hafa t.d. lægra útsvar þá eigi það að draga úr framlögum til þeirra. Því lögðum við Sjálfstæðismenn fram breytingartillögur strax í upphafi við þetta frumvarp og höfum alltaf haldið þessu til haga og eins og ég skil þingið í dag þá verður þessi breytingartillaga samþykkt, þ.e. frumvarpið samþykkt með þeirri breytingu að sveitarfélögunum verður ekki refsað ef þau fullnýta ekki útsvarið og því fagna ég. Það mun gera að verkum að um 95.000 manns munu ekki þurfa að óttast meiri skattbyrði með hækkun útsvars og er það jákvætt og gerir þetta mál mun betra. Þótt það verði ekki alveg gallalaust eftir þetta þá verður það miklu betra og alveg komin ástæða til þess að greiða atkvæði með því.

Það sem ég gerði líka smá athugasemdir við er þetta svokallaða höfuðborgarálag, hvernig það er sett þarna inn. Það eru vissulega margir miðkjarnar í samfélögum sem fá svona auknar skyldur bara við það að vera burðarkjarnar í nærsamfélaginu. Á því er vissulega tekið að hluta til og ég hefði bara viljað styrkja það ákvæði frekar en að vera að bæta þessu inn í. Mér finnst vanta að ef höfuðborgin fær þetta höfuðborgarálag þá séu ríkari skyldur settar á móti. Það fylgja því líka skyldur að vera höfuðborg og ef maður ætlar að fá tekjur fyrir það að hafa aukinn kostnað þá þarf maður líka að sinna skyldum sínum. Mér finnst það svolítið vanta inn í þetta. Þar fyrir utan var eiginlega alltaf í upphafi samkomulag um að þetta kæmi inn svo framarlega sem Reykjavíkurborg færi ekki í mál við jöfnunarsjóð, en Reykjavíkurborg fór í mál við jöfnunarsjóð og tapaði því. En samt er þetta höfuðstaðarálag inni. Ég geri verulegar athugasemdir við það og set mikinn fyrirvara við það.

Svo er ýmislegt annað sem ég ætla kannski ekki að fara að málalengja um hér en ég ætla að fagna hins vegar í breytingartillögu meiri hlutans þeirri viðleitni gagnvart Grindavíkurbæ að gera breytingu til að svona viss hluti af fasteignaskattsframlaginu haldi sér, um 100 milljónir, að ég held. Grindavíkurbær er að gefa eftir um 700 milljónir af fasteignagjöldum með því að innheimta þau ekki og með því að Þórkatla sé í lögum undanskilin fasteignagjöldum. Þetta er um 700 millj. kr. tekjufall hjá Grindavíkurbæ. Hér er þó alla vega smáviðleitni hjá ríkisvaldinu til að koma til móts við það tekjufall með þessum 100 milljónum og ég fagna því. Við vorum að ræða hér fjármálaáætlun áðan, búin að ræða fjáraukalög og annað slíkt og það hefur komið mér á óvart hvað þar er lítið um jarðhræringarnar og uppbygginguna í Grindavíkurbæ því það er tekjulind fyrir ríkissjóð því hraðar sem Grindavíkurbær byggist upp aftur og samfélagið þar. Hér er smáviðleitni sem ber að fagna en það þarf að gera mun meira og það held ég að muni alltaf koma sér vel og nýtast efnahagsástandinu í landinu vel.

Ég held að ég sé búinn að fara yfir helstu atriði hvað þetta mál varðar. Það er þó eitt sem mig langar líka að nefna sem við þurfum að hafa vel í huga og á kannski oftar við á Íslandi í dag en áður og jöfnunarsjóður og við þurfum að vera vakandi fyrir en það eru svokölluð vaxtarsveitarfélög. Það er núna oft þannig að sveitarfélög vaxa langt umfram svona eðlilegan vöxt af ýmsum ástæðum. Oftar en ekki eru þessi vaxtarsveitarfélög keyrð töluvert áfram af innflytjendum eða stór hluti af fjölgun íbúa er vegna innflytjenda og það að vaxa svona hratt, það fylgja því bæði vaxtarverkir og aukinn kostnaður um stundarsakir alla vega. Það liggur bara í hlutarins eðli að ef það eru nýbúar sem kannski þekkja ekki aðstæður eða hafa ekki íslensku að móðurmáli og annað slíkt þá tekur þetta meiri tíma og við viljum gera það vel. Þannig að ég held að það sé eitt af þessum jöfnunartækjum sem við þurfum að hafa í huga í þessum stilliskrúfum til framtíðar. Ég bara skora á hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að hafa þetta í huga, hann er að vísu genginn úr salnum. En ég mun taka þetta upp við hann.

Ég ætla ekki að orðlengja þetta frekar og vona að þetta frumvarp verður samþykkt hér í dag enda eru sveitarfélögin mörg hver búin að bíða lengi eftir þessu, samþykkt með þessum breytingum sem ég hef farið hérna yfir gagnvart Grindavík og með breytingartillögu okkar Sjálfstæðismanna um að það að fullnýta ekki útsvar sé ekki notað sem refsivöndur á sveitarfélögin. Þá held ég að við getum farið svona mátulega sátt frá borði.