156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[11:32]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp sem hefur verið lengi í smíðum og farið í gegnum ýmsar breytingar. Það er löngu tímabært að breyta regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til að ná þeim meginmarkmiðum sem jöfnunarsjóðurinn á að hafa, þ.e. að jafna aðstöðu ólíkra sveitarfélaga út frá tekjum, útgjöldum, íbúafjölda og öðrum tækifærum sem eru í rekstri sveitarfélaga hringinn í kringum landið. Við í Framsókn styðjum það að þetta mál klárist algerlega. Ég hefði kosið og vil þess vegna koma hérna upp að nefna það að þegar kerfisbreytingar bresta á þá eru þær auðvitað umtalsverðar og þegar þetta nýja módel var kynnt fyrir sveitarfélögunum fyrir um tveimur árum þá leist þeim öllum mjög vel á módelið enda stóð ekkert nafn við neitt sveitarfélag. Menn fóru bara í gegnum kerfisbreytinguna, módelið, hvernig hugsunin var að jafna betur stöðu sambærilegra sveitarfélaga sem nutu talsvert ólíks stuðnings í núverandi kerfi. Þegar síðan staðan var reiknuð upp á þau sveitarfélög og nöfnin birtust, þá ekki óvænt skiptust sveitarfélögin í tvo hópa, annars vegar þau sem sáu að ávinningurinn af kerfisbreytingunni var jákvæður, þau studdu frumvarpið ákaft. Hin sem urðu fyrir því að við núverandi aðstæður að módelið sýndi fram á lakari stuðning voru því mótfallin. Það hefur verið komið til móts við suma af þessum hlutum í áframhaldandi stillingu á þessu módeli, sem er til bóta. Það hafa verið umræður umtalsverðar um það hvort þessi jöfnun varðandi fasteignagjöld, sem er nú orðin hálfgert öfugmæli, var sett á fyrir mjög löngum tíma. Það er orðið mjög flókið að viðhalda uppreiknuðum stofni sem jöfnunin byggist á og einn daginn verður það ekki hægt. Þess vegna er mikilvægt að skipta um kerfi og setja þetta þarna inn. En það er auðvitað þannig að þegar sveitarfélög hafa treyst á þær tekjur sem þau hafa í dag verður breytingin umtalsverð. Í þessu frumvarpi er talað um, ef ég man rétt, að hún muni innleiðast í fjórum áföngum yfir fjögurra ára tímabil. Ég hef rætt það hér við nokkra nefndarmenn að það hefði verið enn betra að hafa þennan tíma lengri, hafa hann sex ár til að koma til móts við þau sjónarmið. Það gerist yfirleitt ekki svo hratt í rekstri sveitarfélaga að þau geti umbreytt sinni starfsemi án þess að það komi niður á þjónustu við íbúana. Við megum hins vegar ekki gleyma því að þetta módel er kvikt og breytingar í íbúasamsetningu, tækifærum og möguleikum er stærsta breytan og það getur auðvitað breyst hreinlega staðan hjá einu sveitarfélagi á nokkrum árum. Þess vegna fannst mér skynsamlegt að það væri lengri tími.

Þetta frumvarp hefur hins vegar goldið fyrir það að aðalumræðan hefur verið um það hvort öll sveitarfélög eigi að fullnýta útsvarsstofninn til að geta notið stuðnings úr félagslegum jöfnunarsjóði sem okkur í Framsókn finnst vera augljóst. Það ætti að vera þannig. Þetta er félagslegur jöfnunarsjóður og þess vegna ætti það að vera þannig og þess vegna munum við ekki samþykkja þá tillögu sem hér mun birtast í dag sem hluta af einhverju samkomulagi. Ég geri mér hins vegar fulla grein fyrir því og hef gert það áður sem ráðherra að það sé mikilvægara að ná kerfisbreytingunni í gegn heldur en að hanga á þessu tiltekna atriði vegna þess að í kerfisbreytingunni felast ákveðnar breytingar sem varða þessi sömu sveitarfélög sem verja það með kjafti og klóm að geta boðið lægra útsvar en engu að síður notið ákveðins stuðnings úr jöfnunarsjóði. Við munum því greiða atkvæði gegn þeirri tillögu að því gefnu að ég á ekki von á því að meiri hlutinn breyti því úr þessu að færa fjögurra ára aðlögunartímann yfir í sex ár, þá munum við að lokum sitja hjá væntanlega við afgreiðslu málsins en styðjum algerlega þessa kerfisbreytingu, löngu tímabæra og nauðsynlega í rekstri sveitarfélaga. Það verður meiri fyrirsjáanleiki. Módelið er skýrt, býsna vel gert og auðvitað í framtíðinni þarf að fylgjast með því hvort það sé hægt að búa til einhverjar frekari stilliskrúfur sem gera það að verkum að það taki enn betur á markmiði laganna um jöfnunarsjóð, þ.e. að styðja mismunandi sveitarfélög sem samt eru sambærileg með sambærilegum stuðningi.