156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[11:39]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem verður væntanlega klárað hér í dag. Á síðasta kjörtímabili var töluverð umræða í umhverfis- og samgöngunefnd um jöfnunarsjóðinn og breytingar sem hafa verið í umræðunni og byggðust á tillögum sem komu út úr hópi sem var skipaður af þáverandi innviðaráðherra. Hann skipaði starfshóp um endurskoðun á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga með það að markmiði að auka gæði jöfnunar, einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins og að sjóðurinn fylgdi þróun gerða sveitarfélaga. Frumvarpið sem við ræðum hér byggir á skýrslu þess starfshóps og felur í sér að reglur um jöfnunarsjóð fari úr lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sett verði ný heildarlög um sjóðinn.

Það er ljóst að þessar breytingar munu koma mjög misjafnt niður á sveitarfélögunum. Það var lagt til í frumvarpinu að sveitarfélögin yrðu til að mynda þvinguð til að fullnýta útsvarið, færi frumvarpið í gegn óbreytt, ellegar yrðu þau fyrir krónu á móti krónu skerðingum úr sjóðnum. Áhrifin af því yrðu að hver króna sem væri spöruð íbúum í útsvari myndi leiða til allt að 2 kr. taps sveitarfélagsins. Það liggur fyrir breytingartillaga og það er þá skilningur um það — tillaga frá minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar, hv. þingmönnum frá Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum í nefndinni, sem snýr að því að breyta því að sveitarfélögin þurfi að nýta útsvarsstofninn að fullu til að fá úr jöfnunarsjóðnum. Það er kannski það sem hafa verið mestar deilur um á undanförnum misserum í þessu máli, þær hafa snúið að þessum þætti máls. Það er jákvætt að það verði komið til móts við 90.000–95.000 manns, íbúa þeirra sveitarfélaga sem hafa ekki þurft að nýta útsvarsstofninn að fullu, að það verði komið til móts við þau sveitarfélög eins og ég skil þetta og það er mikilvægt fyrir málið að tillaga minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar verði samþykkt hér í dag fyrir þinglok. Þannig að það er komin lausn á því máli að ég vona og skil, þannig skil ég stöðuna.

Helstu breytingar í frumvarpinu eru að nýtt líkan tekur við af núverandi líkani um tekjujöfnun, útgjaldajöfnun og fasteignaskattsframlög. Samhliða því er farið í breytingar á þeim vogum sem leggja til grundvallar jöfnunar ólíkra útgjaldaþarfa án sérstaks rökstuðnings í skýrslu starfshópsins. Einnig eru vogirnar nokkuð sléttar og ætla má að þetta sé ráðið með pennastrikum og við kannski þyrftum — þetta er flókið ferli og þetta er heil tafla af gríðarlega mörgum breytum þar sem er verið að leiða þetta mál áfram. Það hefur lengi verið sagt að það séu ekki margir einstaklingar á Íslandi sem hafi heildarmyndina af því hvernig allt saman virkar varðandi jöfnunarsjóðinn en ég vona að það sé kominn skilningur í málinu og við getum klárað það.

Það er alveg ljóst í þessu máli að hér er um umtalsverða fjármuni að ræða fyrir sveitarfélögin og það er gríðarlega brýnt að breytingarnar séu rökstuddar almennilega og það sé ljóst hver markmiðin eru. Þessi hlutföll í dag varðandi jöfnunarsjóðinn hafa verið í reglugerð en verða færð í lög með þessu frumvarpi. Það þýðir að það verður erfiðara að stilla skrúfurnar ef þörf er á. Þá fer það í gegnum lög en ekki reglugerð. Þannig stendur málið.

Það hefur verið líka nokkur umræða um þetta svokallaða höfuðstaðarálag. Ég þekki þetta persónulega frá störfum í bæjarstjórn Akureyrar. Þetta er umræða sem hefur verið lengi uppi þar, t.d. eins og með félagslegar íbúðir og slíka hluti. Það kemur ekki fram hér en í nefndaráliti meiri hlutans í þessu máli er sérstaklega talað um Reykjavík varðandi félagslegar íbúðir og slíka þætti, en hlutföllin eru mjög sambærileg á Akureyri. Í 20.000 manna sveitarfélagi eru tæplega 400 félagslegar íbúðir þannig að hátt í 5% af íbúum í sveitarfélaginu eru í félagslega kerfinu, falla þar undir. Það er eina sveitarfélagið sem er svona hlutfallslega, að mér skilst, á svipuðum nótum og Reykjavík. Reykjavík hefur hins vegar notið þess í gegnum tíðina að fá mjög há fasteignagjöld, m.a. af húsnæði á vegum ríkisins. Það er ágætt að bera saman hvernig staða mála var fyrir einhverjum árum þegar maður var í bæjarstjórn Akureyrar. Það var verið að bera saman Menningarhúsið Hof og Hörpu varðandi kostnað sveitarfélaganna af starfsemi þessara húsa og hvernig þetta var nú allt saman reiknað. Þá var það þannig að Akureyrarbær setti tæpar 400 milljónir á ári til að reka húsið og þetta daglega dæmi, rétt rúmlega milljón á dag. Fasteignagjöldin til bæjarins voru 35 milljónir. Á sama tíma var dæmið einhvern veginn þannig að á sama tíma var kostnaður Reykjavíkurborgar af Hörpu einhverjar 600–700 milljónir en fasteignagjöldin voru 600 milljónir. Þetta var mjög ólíkt og ekki beint hægt að tala um sambærilega nálgun í þessu varðandi fasteignagjöldin. Reykjavíkurborg kom miklu betur út úr þessu og síðan náttúrlega þekkjum við þessa umræðu sem hefur verið um eignir ríkisins og hversu mikilla tekna Reykjavíkurborg hefur notið af þeim. Það er á allt öðrum nótum en önnur sveitarfélög í landinu þekkja.

Það sem er nýjasta nýtt í þessu frumvarpi og er nýjung er að það er kynnt til leiks nýtt framlag, svokallað höfuðstaðarálag. Ég hef ekki orðið var við að þessum prósentum hafi verið breytt í vinnu umhverfis- og samgöngunefndar en það var lagt af stað a.m.k. í frumvarpinu að þetta höfuðstaðarálag myndi nema allt að 2,5% af jöfnunarframlögum sjóðsins til lengri tíma litið. Það verði fasað inn eða þrepaskipt með þeim hætti að það yrði 1% árið 2026, 1,75% árið 2027 og 2,5% frá og með árinu 2028. Framlagið skiptist þannig að 1 prósentustigi þess yrði skipt jafnt milli Akureyrar og Reykjavíkur og 1,5% eftir fjölda íbúa þeirra. Framlagið er rökstutt með þeim hætti í greinargerð að kostnaður á hvern íbúa hefði verið hærri í sveitarfélögunum samkvæmt talnagögnum úr Árbók sveitarfélaga 2024. Einnig er tiltekinn kostnaður sveitarfélaganna vegna menningarkostnaðar á hvern íbúa. Segir þar enn fremur að nýtt jöfnunarlíkan eigi að „taka tillit til sveitarfélaga sem veita mikla og fjölþætta þjónustu en framlagi vegna höfuðstaðarálags er ætlað að veita Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ stuðning vegna útgjaldaþarfar sem jöfnunarlíkanið tekur ekki mið af.“ Þar er rekstur á gistiskýlum og þjónusta við heimilislausa einstaklinga sérstaklega tilgreind.

Það má aðeins bæta inn í þetta kannski að þetta kemur svolítið til, þegar við erum að ræða þessi mál, vegna þyngdar í velferðarkerfinu, félagslega þættinum í kerfinu sem þessi sveitarfélög bera. En það verður að hafa í huga að það eru fleiri sveitarfélög sem bera mjög mikla byrði, félagslega byrði varðandi velferðarkerfið. Þar má nefna sveitarfélög eins og Akraneskaupstað. Mig grunar að aðrir hérna þekki og muni þær tölur betur. Mig minnir að það hafi verið mjög hár hluti, kannski 23–24%, af rekstri Akraneskaupstaðar, sem tengist þessum kerfum og svo er Mosfellsbær líka með mjög mikla byrði sem er tengd þessu og væntanlega Reykjanesbær líka, myndi ég halda.

Síðan kemur að þessari sérstöðu, sem er líka minnst á hér, sem snýr að menningarmálum. Ég man að á sínum tíma þegar sá sem hér stendur var í bæjarstjórn Akureyrar þá vorum við að fást við það að um 6% af rekstrarkostnaði Akureyrarbæjar fór í menningarmál. Það var náttúrlega verið að þjónusta mjög stórt svæði, stór svæði í kringum Akureyri, og halda uppi ákveðnu menningarstigi og nýttist þar með mjög stóru landsvæði. Á sama tíma voru sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu kannski að nýta um 1% og innan við 1% af sínum rekstrarkostnaði til menningarmála. Akureyrarkaupstaður var með þessi 6%. Þetta er náttúrlega hluti af því þegar við ræðum um þetta höfuðstaðarálag, þetta er hluti af þessum pakka. Við sem höfum starfað og sinnt skyldum í bæjarstjórn Akureyrar yfir mjög langt tímabil þekkjum það að þegar við vorum að fara í gegnum fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins og bera saman við sambærileg sveitarfélög af sambærilegri stærð þá leit tölfræðin töluvert öðruvísi út þegar það sem snýr að þessu var borið saman. Þetta er svona það helsta sem ég vildi koma inn á sem snýr að þessu svokallaða höfuðstaðarálagi.

Það er ánægjulegt, eins og ég byrjaði þessa ræðu á, að verið sé að koma til móts við breytingartillögu minni hlutans sem varðar útsvarið. Í nefndaráliti 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar, sem eru hv. þingmenn Ólafur Adolfsson, sem er framsögumaður álitsins, Jens Garðar Helgason og Ingibjörg Davíðsdóttir, kemur fram, með leyfi frú forseta:

„Fyrsti minni hluti nefndarinnar fagnar heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og tekur undir markmið frumvarpsins um að styrkja gagnsæi, jöfnun og fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélaga. Hins vegar telur 1. minni hluti nauðsynlegt að gera umtalsverðar breytingar á frumvarpinu eigi það fram að ganga.

Frumvarpið gerir ráð fyrir því að sveitarfélög sem fullnýta ekki heimild sína til álagningar útsvars hljóti skerðingu af framlögum úr jöfnunarsjóði. Ákvæðið skapar ranga hvata og refsar sveitarfélögum sem reyna að reka sig vel og bregðast við ólíkum aðstæðum með ábyrgri skattlagningu.“

Það er verið að koma til móts við þessi sjónarmið í dag þannig að það er ánægjulegt. Eftir gríðarlega mikla vinnu sem hefur farið fram í tengslum við jöfnunarsjóðinn á undanförnum árum og hefur þróast ágætlega þá vonar sá sem hér stendur að það sé að nást einhver sátt, vonandi ágætissátt, um þessi mál sem eru gríðarlega mikilvæg á hinu stjórnsýslustiginu. Það er mjög mikilvægt miðað við hvernig sveitarfélögin eru að þróast í landinu að það sé sett á kerfi sem þjónar þessum miklu breytingum sem hafa orðið á sveitarfélögunum. Sá sem hér stendur mun styðja frumvarpið með þeim breytingum sem koma fram í breytingartillögum minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar.

Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.