Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Já, þetta frumvarp er að koma aftur hérna og er hluti af því sem á að klára núna fyrir þinglok. Við vorum síðast að ræða þetta mál, ef ég man rétt, í lok apríl. Þetta hefur svo sem verið lengi í umræðunni og verið lagt fram sams konar mál á öðru kjörtímabili. Það sem er náttúrlega gott við þetta er að það hefur um alllangan tíma verið kallað eftir breytingum á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að einfalda og auka gagnsæi í störfum sjóðsins. Eins og ég nefndi og fleiri vita, allir þeir sem eru eitthvað inni í þessum málum eða eru að vinna að þessum málum, þá eru sárafáir í landinu sem skilja nákvæmlega það líkan sem unnið er eftir og því er mjög jákvætt að verið sé að gera breytingar og reyna að einfalda þessa hluti. En þá koma auðvitað athugasemdir og það er búin að vera ágætisvinna, eftir því sem mér skilst og sé en ég er ekki í viðkomandi nefnd, í því að reyna að ná einhverri sæmilegri sátt um þetta. Þetta er stórt mál og það eru ólíkir hagsmunir, ólík sveitarfélög víðs vegar um landið sem hafa á þessu skoðanir út frá ólíkum forsendum.
Nú er ég þingmaður Suðvesturkjördæmis og við þekkjum gagnrýni sem hefur komið þaðan, bæði við þessa framlagningu og líka áður, um sérstaklega þetta atriði sem hefur verið inni í frumvarpinu um að þau sveitarfélög sem ekki fullnýti heimild sína til álagningar útsvars hljóti skerðingu af framlögum úr sjóðnum. Þetta hefur verið harðlega gagnrýnt. Það er mat þeirra sem koma að sveitarstjórnarmálum, einkum hérna í Suðvesturkjördæmi, að þarna sé ekki aðeins vegið að sveitarfélögunum sjálfum heldur íbúunum og þá sérstaklega vegið að fjárhagslegu sjálfstæði sveitarfélaga í landinu með því að ætla að setja svona kröfur og svona ákvæði inn í frumvarp sem þetta. Þau sveitarfélög sem hafa ekki verið með álagningarhlutfallið í botni eru einkum hér eða íbúafjöldinn á bak við þau er mestur hér á höfuðborgarsvæðinu í þessum áðurnefndu sveitarfélögum í Suðvesturkjördæmi. Það eru einkum þau sveitarfélög sem ekki hafa verið að nýta álagningarhlutfallið til fulls og hafa viljað skila ávinningi af rekstri sínum til bæjarbúa í lægri útsvarsprósentu. Þetta er náttúrlega heilmikil pólitík sem í þessu felst, að ætla í rauninni að fara að neyða sveitarfélög, ef svo má að orði komast, til að hafa þetta í botni, annars fái þau skerðingu. Meðal þeirra raka sem hafa komið fram í umræðunni er að jöfnunarsjóðurinn eigi ekki að vera að greiða niður útsvar hjá stóru sveitarfélögunum á suðvesturhorninu sem ekki vilja leggja á hámarksútsvar en það hefur sýnt sig núna í vinnslu málsins að þær röksemdir, þær fullyrðingar standast ekki. Það stenst enga skoðun að svo sé og hefur verið sýnt fram á að þetta er ekki svona. Þótt ákvæðið falli brott þá kom það skýrt fram í umfjöllun nefndarinnar og í svörum frá innviðaráðuneytinu að útsvarsprósenta sveitarfélaga hefur ekki áhrif á greiðslu til jöfnunarsjóðs, enda taki framlög til jöfnunarsjóðs mið af útsvarsstofni óháð álagningarprósentu, svo vitnað sé beint í nefndarálit minni hlutans.
Það er því algjörlega röng fullyrðing að sveitarfélögin sem ekki nýti fullt útsvar séu að gera það á kostnað annarra sveitarfélaga. Mér skilst að eftir útreikninga innviðaráðuneytisins og vinnu í nefndinni, sem er hið besta mál, sé að komast sameiginlegur skilningur á þetta og að það sé vonandi sameiginleg skoðun okkar allra sem hér erum að við skulum ekki með þessu ákvæði vera að ógna fjárhagslegu sjálfstæði sveitarfélaga. Það er nú alveg ágætt.
Það er verið að gera breytingar á jöfnunarframlaginu og eins og ég sagði hérna áðan og hef tönnlast á áður er ekki einfalt að skilja hvernig þessi framlög eru reiknuð og fjármálastjórar, bæjarstjórar og aðrir sem að þessum málum koma eiga fullt í fangi með að reyna að skilja þetta. En þessi breyting núna, þetta svokallaða jöfnunarframlag, tengist því að framlög tengd tekjujöfnun og útgjaldajöfnun sameinist í nýtt framlag og eru alls kyns reikniformúlur þar á bak við sem ég ætla ekki að reyna að fara út í hérna. Það hefur komið fram sú gagnrýni að þetta komi misjafnlega niður á sveitarfélögunum, og það á að vera aðlögun til einhverra ára sem eflaust hefði mátt vera til fleiri ára eins og hér hefur komið fram. En það er a.m.k. verið að reyna að einfalda þetta og stóra málið í þessu, og það er vonandi að nást sátt um það, er að refsa ekki sveitarfélögum sem er annt um fjárhagslegt sjálfstæði sitt og láta það ekki bitna á íbúum þeirra sveitarfélaga sem hafa metnað og vilja til þess að nýta ekki fullt útsvar eða álagningarhlutfall útsvars.
Aðrir þættir í þessu sem hafa verið umdeildir er höfuðstaðarálagið. Það er m.a. komið inn á það í nefndaráliti minni hluta og nefnt að það séu sannarlega fleiri en þessi tvö sveitarfélög sem um ræðir, höfuðborgin Reykjavík og Akureyri, sem beri kostnað af þeim málaflokkum sem eru tilgreindir sem rök í málinu, einkum menningarmál en mörg mál eru notuð sem rök, að vegna þess að þeim sé sinnt sérstaklega mikið á þessum tveimur stöðum skuli koma til sérstaks höfuðstaðarálags. Í umsögnum um þennan þátt málsins er ekki síst gagnrýnt að það séu ekki sérstök viðmið eða skilyrði sem sveitarfélag þurfi að uppfylla til að eiga rétt á slíku höfuðstaðarframlagi. Ég get tekið undir það sem kemur t.d. fram í umsögn Kópavogsbæjar um að þetta sé að mörgu leyti huglægt mat, sem getur varla verið gott. En þetta er svona og eins og hefur verið nefnt og ég hef áður komið inn á og við þekkjum, þá náttúrlega nýtur höfuðborgin Reykjavík ríkulegra, hvað á ég að segja, forréttinda hvað tekjustofn varðar sem felst í fasteignasköttum af öllum eða flestum opinberum byggingum og er þar um að ræða marga milljarða króna. Það hefur verið nefnt líka t.d. að Reykjavík sinni einkum og aðallega heimilislausum en það hefur ekki verið nefnt í því sambandi að sveitarfélögin í kringum höfuðborgina sem nýta þjónustu Reykjavíkur eru nú að borga 50.000 kr. á nótt fyrir sína skjólstæðinga sem þurfa að fá húsaskjól og þessa þjónustu, gistinótt í gistiskýli. Það eru borgaðar 50.000 kr. fyrir hana af hálfu þessara sveitarfélaga. Og hvað er rétt viðmið í þessu? Ég get tekið undir það að þetta er aðeins of opið og of huglægt, eins og segir í nefndaráliti 1. minni hluta sem mig langar, með leyfi forseta, að fá að vitna beint í:
„Þótt 1. minni hluti sýni þessu sjónarmiði skilning þar sem kostnaði vegna þessa er misskipt milli sveitarfélaga, þá eru fleiri sveitarfélög en þessi tvö sem bera meiri kostnað af málaflokkunum án þess að það sé komið til móts við hann í þessu frumvarpi. Ekki fór fram greining á kostnaði annarra sveitarfélaga vegna málaflokksins í vinnu nefndarinnar“ — er þá einkum verið að tala um félagsþjónustu og menningarstofnanir — „og hvetur 1. minni hluti til þess að fram fari greining á sambærilegu félagsþjónustu- og menningarálagi annarra sveitarfélaga […] Fyrsti minni hluti telur að mæta eigi sérstakri útgjaldaþörf sem þessari í gegnum úthlutunarlíkanið í stað þess að taka tvö sveitarfélög sérstaklega út fyrir mengið með fjárstuðningi án beins tillits til kostnaðar.“
Við tökum auðvitað undir þetta í áliti 1. minni hluta. Þetta er eitthvað sem þarf að skoða í framtíðinni, hvernig það kemur út, því að þótt verið sé að gera þessar breytingar er ljóst að heildarendurskoðun — það hefur verið kallað eftir heildarendurskoðun á þessum lögum, ekki bara á regluverkinu heldur heildarendurskoðun og hvernig þetta eigi allt að fara saman þannig að sem víðtækust sátt náist um.
Það er fyrst og fremst gott að við séum að komast að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að ákvæðið um útsvarshlutfallið og þau sveitarfélög sem fullnýta ekki heimildir sínar til álagningar falli brott. Ég vona svo sannarlega að það náist samstaða um það hér í dag því það er stórmál sem hefur ekki góðar afleiðingar og er í rauninni mjög óréttlát aðgerð, enda kemur í ljós að fullyrðingar sem settar hafa verið fram sem rök fyrir því hafa ekki átt við rök að styðjast.