Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Forseti. Við ræðum hér jöfnunarsjóðsfrumvarpið og ég hygg að þetta sé mín önnur ræða í 2. umræðu. Mig langar að byrja á að segja, virðulegur forseti, að hér er um kerfisbreytingu að ræða, vegna þess að við höfum verið að ræða mikið um kerfisbreytingu hér varðandi veiðigjöldin. Hér er um kerfisbreytingu að ræða en hér er líka um vel unnið mál að ræða. Þetta mál á sér langa forsögu frá síðustu ríkisstjórn þegar myndaður var sérstakur starfshópur til að fara yfir regluverkið í kringum jöfnunarsjóð. Við skulum muna að núna eru ekki til lög um jöfnunarsjóð heldur er þetta inni í lögum er varða fjármál sveitarfélaga. Kerfið sem við búum við í dag er margbætt og margstagað og er þar af leiðandi ógegnsætt. Ég held að flestir séu sammála um að það sé erfitt að skilja það og að það fúnkeri kannski ekki í samræmi við það sem þarf að gera í samræmi við þær skyldur sem sveitarfélögin hafa í dag.
Þetta vildi ég nú sagt hafa, virðulegur forseti, vegna þess að þegar farið er í kerfisbreytingar þá er nauðsynlegt að vanda til verka, það er nauðsynlegt að hlusta og það er nauðsynlegt að horfa til þess hvaða áhrif slíkar breytingar hafa og það hefur verið gert í þessu efni í töluverðan tíma. Fyrst var þessi samráðshópur. Það fór í kjölfarið í samráðsgáttina og fékk fjölda umsagna og tók breytingum. Svo kom málið hér fram á þinginu 2023–2024. Þá hafði þetta verið rætt töluvert og það var algjör prinsippafstaða af hálfu Sjálfstæðisflokksins að það sem birtist okkur í 14. gr. þessa frumvarps, eins og það liggur fyrir þinginu núna, væri eitthvað sem ekki væri hægt að sætta sig við. Það lýtur að því að refsa sveitarfélögum sérstaklega fyrir það að vera ekki að rukka hámarksútsvar. Ég ætla að ítreka það sem ég hef sagt hér áður í þessari umræðu, virðulegur forseti: Það er ekki þannig að sveitarfélög sem fullnýta ekki tekjustofna sína, eins og það er orðað í frumvarpinu — að önnur sveitarfélög sem fullnýta þá, sem rukka háa skatta, séu með einhverjum hætti að niðurgreiða eitthvað til þessara sveitarfélaga. Það er ekki svo, enda segir það skýrt í öllum greinum þessa frumvarps um jöfnunarframlögin, útgjaldaþörfina og annað að það sé alltaf miðað við það að viðkomandi sveitarfélag sé að hámarka útsvar sitt, þannig að þegar verið er að reikna út einstök framlög þá er horft til þess að viðkomandi sveitarfélag sé að hámarka útsvar sitt. Það fær sem sagt ekki hærri greiðslur úr því vegna þess að það er ekki með hámarksútsvar heldur auðvitað tekur viðkomandi sveitarfélag þá ábyrgð á sínum rekstri og fær framlög í samræmi við útgjaldaþörfina sem slíka. Ég vil ítreka enn og aftur, því hér er oft talað um það eins og — þetta er jú félagslegur sjóður og upphaflega var þetta einhvers konar fátæktarsjóður fyrir ákveðin sveitarfélög, en það segir hér í 1. gr. þessa frumvarps að hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sé að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum. Það er mismunandi útgjaldaþörf. Ég held að við séum flest sammála um að það sé ástæða til að greiða með til að mynda fötluðu fólki, grunnskólabörnum og fleiri útgjaldaþáttum. Það er tekið ágætlega á því í þessu frumvarpi.
Þetta frumvarp uppfyllir líka þingskapalög. Það kom hér fram fyrir tilskilinn frest. Ég er hér sérstaklega, virðulegur forseti, að vísa í margumrædd veiðigjöld sem fóru lítið sem ekkert í samráðsgáttina og komu hér of seint, þannig að, virðulegur forseti, mér finnst nauðsynlegt að benda á að það frumvarp sem hér liggur fyrir hefur fengið ítarlega og mikla vinnu. Það hefur verið hlustað á öll sjónarmið. Það hefur verið haft samráð við hagaðila og sveitarfélög vítt og breitt um landið. Þess vegna erum við hér með vel unnið mál, en það sem ég var verulega ósátt við, virðulegur forseti, þegar málið kom fram í 1. umræðu var að það var ekki eins og það hafði komið fram fyrir þingið síðast, þ.e. þessi 14. gr. var enn inni um að refsa sérstaklega ef sveitarfélögin væru ekki með skattana sína í botni. Það finnst mér óásættanlegt og ég fór ágætlega yfir það í annarri ræðu að þegar um svona kerfisbreytingar er að ræða og stór mál þá þarf oft að fara í einhvers konar pólitíska þeytivindu og það þarf að reyna að ná sátt og málamiðlun um hlutina. Ég get alveg sagt það að mér finnst ekkert vit í þessu höfuðborgarálagi. Ég veit að það er hægt að færa rök fyrir því en mér finnst ekkert vit í því en ég sætti mig við það á sínum tíma og hefði samþykkt málið með þessu höfuðborgarálagi en ekki með þessum refsivendi um það að sveitarfélögin megi ekki reka sig svo vel og hafa þá pólitísku stefnu að rukka ekki fullt útsvar. Ég taldi að málið eins og það hafði birst þinginu síðast þegar það kom fram hefði verið góð málamiðlun, ekki þannig að allir séu fullkomlega sáttir heldur væri verið að miðla málum.
Þess vegna lagði ég fram við 1. umræðu breytingartillögu um að taka út ákveðnar málsgreinar, 3–5. mgr. 14. gr., og ég var svo sannarlega að vona að hv. umhverfis- og samgöngunefnd myndi gera þá tillögu að sinni. Svo varð ekki en sú tillaga er hér í minnihlutaálitinu og mér skilst, virðulegur forseti, að fólki hafi hér snúist hugur og sé tilbúið til að samþykkja þá breytingartillögu. Fyrir það er ég þakklát. Ég held að það sé mikilvægt. Ég held að það sé gott. Ég held að það sé gott að við náum breiðri samstöðu um mál eins og þetta sem varðar kerfisbreytingu. En ég átta mig líka á því, virðulegur forseti, að hér er verið að stíga fyrsta skrefið af væntanlega nokkrum í því að aðlaga jöfnunarsjóðinn frekar að því umhverfi sem sveitarfélögin búa við í dag.
Þegar sveitarfélögin fá svona frumvarp í hendurnar og nýtt reiknimódel eins og hér er þá reiknar þetta hver út fyrir sig: Hvernig kemur þetta út fyrir mitt sveitarfélag? Þar af leiðandi kunna að vera skiptar skoðanir á málinu. Ég benti til að mynda á það að mitt sveitarfélag, Mosfellsbær, kemur ekki vel út úr þessu nýja regluverki. Það er reyndar fjallað sérstaklega um það í áliti meiri hluta hv. umhverfis- og samgöngunefndar og talað fyrir því að það þurfi að fylgjast sérstaklega með því framlagi er lýtur þá sérstaklega að velferðarþættinum. Ástæðan er til að mynda sú að í Mosfellsbæ býr fjöldi fatlaðra einstaklinga og það á sér góða og fallega sögu, m.a. vegna Skálatúns. Ég get tekið undir þá hvatningu að það verði fylgst vel með þessum þáttum hjá ráðuneytinu. Það kann að vera að það sé nauðsynlegt að endurstilla einhverjar skrúfur þegar fram líða stundir en stóra málið er auðvitað að við séum með eitthvert regluverk sem hægt er að ná breiðri samstöðu um að í geti verið falin ákveðin sanngirni gagnvart sveitarfélögum í landinu og ég segi fyrir mitt leyti: Ég get vel sætt mig við málið að því gefnu að stór hluti 14. gr. falli burt. Þá held ég að við séum með mál sem við getum verið ánægð með. Ég held að það sé löngu orðið tímabært að breyta regluverkinu í kringum jöfnunarsjóð, það sé löngu orðið tímabært að vera með sérstök lög um þann sjóð og við séum hér á fyrsta stigi að aðlaga það að kannski breyttu umhverfi.
Ég ætla samt líka að fá að segja, virðulegur forseti, að ég vil varast að þessi sjóður verði of stór og umfangsmikill. Ég hygg að það sé betra að sveitarfélögin fái meiru að ráða um sína fjármuni sem þau innheimta frá sínum íbúum, á meðan ég aðhyllist þó þá sýn sem er í regluverkinu um jöfnunarsjóð að við þurfum að greiða út frá útgjaldaþörf, m.a. vegna grunnskólabarna og fatlaðra einstaklinga. Ég hef alveg skilning líka á sjónarmiðum þeirra sveitarfélaga sem eru fjölkjarnasveitarfélög og það er mikilvægt að regluverkið okkar sé þannig að það hvetji frekar en letji til sameiningar sveitarfélaga því að sveitarfélögin sinna alveg ofboðslega mikilvægri grunnþjónustu fyrir íbúa sína. Til að geta gert það vel þurfa þau að vera öflug og í því felst þá líka oft að vera stór. Þess vegna er mikilvægt að regluverkið hafi rétta hvata en ekki ranga hvata. Þess vegna er þessi breytingartillaga einmitt svo mikilvæg. Það hefði verið rangt að vera með hvata sem fælu í sér hvatningu til sveitarfélaga um að fullnýta útsvarsheimild sína eða með öðrum orðum að hækka skatta. Það er rétt að við leyfum sveitarfélögunum að nýta sinn sjálfsákvörðunarrétt og innheimta þau gjöld og þær álögur á íbúa sem þau telja rétt með farið. Að því sögðu held ég að við gætum gengið hér til atkvæða um mikilvægt mál sem hefur hlotið vandaða og góða vinnu í langan tíma og hlustað hefur verið á hin ýmsu sjónarmið.