Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég vil við þessa umræðu um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga leggja nokkur orð í púkkið er varða fyrst og fremst þetta fullnýtingarákvæði sem það er stundum kallað sem gengur út á það í raun að lögþvinga sveitarfélög til að vera með útsvarsprósentu sína í hámarki, að öðrum kosti verði sveitarfélagið skert krónu fyrir krónu um það sem upp á vantar. Það hefur verið svona undansláttur og orðhengilsháttur viðhafður í tengslum við umræðu um þetta ákvæði og því haldið fram að sveitarfélög tækju þessa ákvörðun sjálf. Auðvitað er það þannig tæknilega en sveitarfélögin geta ekki tekið neina aðra ákvörðun eins og regluverkið er lagt til hérna og því er í raun um lögþvingun að ræða. Eins og segir í frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Ef sveitarfélag fullnýtir ekki heimild sína til álagningar útsvars skal lækka framlög jöfnunarsjóðs árið eftir til viðkomandi sveitarfélags, [...], að fjárhæð sem nemur mismun á hámarksálagningu útsvars og álagningu sveitarfélagsins á yfirstandandi ári.“
Það er sem sagt skerðing um krónu á móti krónu fyrir þau sveitarfélög sem eru ekki með útsvarið í hæsta lögleyfða toppi. Þetta er lögþvingun og ekkert annað. Ég er mjög ánægður með að hér sé orðin sú niðurstaða, þó að það eigi eftir að ganga í gegnum atkvæðagreiðslu, að samþykkja breytingartillögu 1. minni hluta, sem að standa þingmennirnir Ólafur Adolfsson, Jens Garðar Helgason og Ingibjörg Davíðsdóttir, hv. þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Það er til mikilla bóta að þetta ákvæði fari út því að eins og segir í nefndaráliti 1. minni hluta, með leyfi forseta:
„Fyrsti minni hluti nefndarinnar fagnar heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og tekur undir markmið frumvarpsins um að styrkja gagnsæi, jöfnun og fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélaga.“
En í framhaldinu er komið inn á að það þurfi að gera nokkrar breytingar og þetta er ein þeirra að hverfa frá þessu fullnýtingarákvæði, lögþvinguðu útsvarshækkuninni, ætli það séu ekki hátt í 100.000 íbúar sem njóta góðs af. Sömuleiðis er hér komið inn ákvæði í breytingartillögu hv. meiri hluta nefndarinnar er varðar Grindavík. Það hefur verið óskað eftir því að það verði greidd sérstaklega atkvæði um þann lið í atkvæðagreiðslu á eftir og þingflokkur Miðflokksins mun í öllu falli styðja við þá tilteknu breytingartillögu meiri hlutans.
Breytingartillaga 1. minni hluta, svo henni sé haldið til haga, er að 3.–5. mgr. 14. gr. falli brott. Það er málsgreinin sem fjallar um fullnýtingarákvæðið. Að þeirri breytingu samþykktri er málið komið til mun betri vegar en í stefndi. Grindavíkurákvæðið kemur inn með breytingartillögu hv. meiri hluta nefndarinnar. Ég ætla ekki að fara út í að ræða höfuðborgarálagið, ég hef ekki sterka sannfæringu fyrir því að það sé skynsamleg útfærsla en læt hér við sitja hvað það varðar.
Í öllu falli er ég ánægður með að hér sé að verða niðurstaða þess efnis að fullnýtingarákvæðið detti út og Grindavíkurákvæðið komi inn og þingflokkur Miðflokksins mun styðja við afgreiðslu málsins eins og það liggur fyrir.