veiðigjald.
Frú forseti. Þetta er góður dagur hér í dag vegna þess að við erum loksins að festa hér í lög að þjóðin fái loksins greitt eðlilegt gjald fyrir nýtingarréttinn af þjóðarauðlindinni. Mig langar til að þakka þjóðinni fyrir stuðning sinn við okkur. Hann skiptir miklu máli.
Mig langar líka til að þakka atvinnuveganefnd fyrir vinnuna, meiri hlutanum fyrir þær góðu tillögur sem lagðar voru fram, sem gera gott mál enn betra. Sérstaklega vil ég þakka framsögumanni málsins, Eiríki Birni Björgvinssyni, fyrir frábæra vinnu og formanni atvinnuveganefndar, Sigurjóni Þórðarsyni, fyrir að leiða málið vel áfram.
Mig langar líka til að þakka stjórnarandstöðunni vegna þess að framganga hennar í þessu máli hefur einfaldlega sýnt svo ekki verður um villst mikilvægi þess að ríkisstjórn Viðreisnar, Flokks fólksins og Samfylkingar haldi áfram á þessari góðu vegferð vegna þess að það var kosið um breytingar og það eru breytingar sem almenningur mun fá. Við erum bara rétt að byrja þessa vinnu okkar í þágu almannahagsmuna. (Forseti hringir.) Grímulaus varðstaða um sérhagsmuni, hún er á enda.