156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:12]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við í Sjálfstæðisflokknum höfum talað af yfirvegun og ábyrgð í þessu máli. Það sem við höfum orðið vitni að síðustu vikur er með öllum ólíkindum, hvernig ríkisstjórnin hefur komið fram gagnvart einni af undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar, sjávarútveginum. Hér hefur ekki verið leitað sátta, ekki verið hlustað á hagsmunaaðila, ekki byggt á traustu samráði. Þess í stað var málum þröngvað í gegnum þingið með fordæmalausri valdbeitingu. Við töluðum ekki fyrir sérhagsmunum. Við töluðum fyrir heildinni, fyrir fólkið í landinu, fyrir fyrirtækin, fyrir sveitarfélögin sem byggja á sjávarútvegi og fyrir traust á þinginu sjálfu. Afleiðingar þessa máls verða alvarlegar fyrir störf og fjárfestingu, fyrir byggðirnar og fyrir traustið á lýðræðinu. Það er ekki sátt. Það er vantraust sem ríkisstjórnin skilur eftir sig.