156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um mál sem hverfist á endanum um grímulausa sérhagsmunagæslu hagsmuna þingflokka og flokka Viðreisnar og Samfylkingar. Þetta mál hefur allt verið með miklum ólíkindum og fyrst varð þetta undarlegt þegar ríkisstjórnarflokkunum svelgdist á eigin frekjukasti hér síðastliðinn föstudag.

Þetta er því miður mál sem er svo illa unnið og svo brogað að mörgu leyti að það mun hafa áhrif til langs tíma. Mér segir svo hugur að ráðherra málaflokksins verði í dómsölum fljótlega vegna þess og þar er ekki víst um niðurstöðu þó að ég telji víst að hæstv. ráðherra byrji í heldur vondri stöðu í vörn sinni. Mér þykir mjög miður að við séum komin á þennan stað í stað þess að litið verði til ábendinga okkar í stjórnarandstöðunni um að málið gangi aftur til ríkisstjórnarinnar og verði þar unnið betur. En hér erum við í kjölfar þessarar fordæmalausu beitingar 71. gr. þingskapa sem mun hafa áhrif hér til langrar framtíðar ef fram heldur sem horfir og (Forseti hringir.) eins og gefur að skilja þá mun þingflokkur Miðflokksins greiða atkvæði gegn afgreiðslu þessa máls við lokaafgreiðslu þess.