veiðigjald.
Virðulegur forseti. Þó að það sé bjart og fallegt úti er þetta nú heldur dapur dagur í sögu þings og það er áhyggjuefni að hlusta á orðræðu hæstv. atvinnuvegaráðherra, hótanir um að lengra skuli ganga þennan veg. Það er áhyggjuefni fyrir þjóðina. Þetta mál er auðvitað vaxið eins og það er vaxið, illa undirbúið. Hefði getað komið hér næsta haust, það tekur ekki gildi fyrr en 1. nóvember, en meiri hlutinn valdi að gera það ekki. Við í Framsókn munum að sjálfsögðu greiða atkvæði gegn frumvarpinu í heild. Við munum að sjálfsögðu styðja allar breytingartillögur minni hlutans enda eru þær vandaðar. Þær eru gerðar eftir að hlustað var eftir sjónarmiðum. Við munum eftir atvikum styðja eða sitja hjá við jákvæðar breytingar meiri hlutans sem hafa sýnt að lokum að umræða okkar var réttmæt.