veiðigjald.
Forseti. Þessi atkvæðagreiðsla var þvinguð fram af forseta með beitingu 71. gr. þingskapalaga þar sem málfrelsið var tekið af þingmönnum. Þetta er skattahækkunarmál sem kom fram of seint og þar sem rauð flögg birtust í hverju skrefi þinglegrar meðferðar. Nú er öll pressa farin af þingmönnum meiri hlutans að vanda til verka og aðhaldshlutverki minni hlutans þar með kippt úr sambandi. Miðað við fræga minnisblaðið átti aldrei að leyfa þessu máli að fá þinglega meðferð. Nú liggur fyrir stjórnunarstíll hæstv. ríkisstjórnar, Kristrúnar Frostadóttur. Það átti að berja okkur til hlýðni en ég get upplýst hér að Miðflokkurinn þjáist ekki af Stokkhólmsheilkenninu. Nú er allt breytt hér í þinginu. Ef meiri hlutinn telur að þingræðið og lýðræðið felist bara í því að ýta á gula, græna eða rauða takkann þá stöndum við frammi fyrir því, forseti, að spyrja okkur: Til hvers er þingleg meðferð?