veiðigjald.
Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um mál sem hefur skipt ofboðslega miklu máli á þessum þingvetri. Það hefur verið mikil reynsla fyrir nýjan þingmann að sitja í atvinnuveganefnd og fylgja þessu máli eftir hér í þinginu. Við höfum lagt okkar á vogarskálarnar þegar kemur að því að koma með jákvæðar breytingartillögur í annars mjög góðu og vönduðu máli. Ég vil þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir að hafa staðið keik á meðan yfir hana gengu gusur. Hennar framganga í málinu er til fyrirmyndar að öllu leyti og ég er mjög stolt af því að standa hér og greiða atkvæði með þessu máli. Eftir stendur að ríkisstjórnin núna er að breyta kerfinu, gera það gagnsærra og tryggja að þjóðin fái sanngjarnt gjald fyrir afnot af auðlindinni. Allar stórar breytingar mæta andstöðu, jafnvel er alið á ótta, en þessi ríkisstjórn hefur með þessu sýnt að hún óttast ekki breytingar og við höfum kjark til að hrinda þeim í framkvæmd. (Forseti hringir.) Kosningaloforð Viðreisnar 2024 var Breytum þessu og það er það sem við erum að gera.