156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:19]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við erum hér í dag að fara að greiða atkvæði um breytingu á lögum um veiðigjald. Þetta mál er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska þjóð. Þetta er sanngirnismál þar sem verið er að reikna veiðigjöld af eðlilegu verðmæti aflans og skila því til þjóðarinnar, til fólksins í landinu. Það er gríðarlega mikilvægt að ná þessu fram.

Mig langaði að koma hingað upp og lýsa minni afstöðu sem er væntanlega nokkuð augljós. Ég styð þetta mál og þakka að sjálfsögðu samstarf í hv. atvinnuveganefnd, það er búið að vera ánægjulegt að taka þátt í vinnunni þar, og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar vinnu í þessu að leggja fram og undirbúa málið vel fyrir okkar vinnu. Þetta er mikilvægt mál fyrir þjóðina og þetta er stór dagur fyrir okkur öll.