156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:21]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er sannur heiður að taka þátt í því að greiða atkvæði um þetta mál og styðja það. Það snýst um grundvallaratriði: Þjóðin á fiskveiðiauðlindina. Það er eðlilegt að hún fái arð af henni. Og þetta frumvarp er tæknileg útfærsla á því til að reyna að nálgast það. Þetta er mjög stórt og mikilvægt skref. En leiðangrinum er ekki lokið. Það þarf, eins og þessi vetur sýnir, að standa vörð um almannahagsmuni, standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar í þessum málum, í strandveiðum og í svo mörgum öðrum málum sem snerta byggð um landið, sem snerta þjóðarhag. En þetta er sannarlega stór dagur og stórt skref í rétta átt sem við erum að taka hér öll saman, vonandi.