156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:23]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það hefur verið heiður að taka þátt í þessari vinnu við þetta góða mál. Ég vil þakka nefndarmönnum fyrir vel unnin störf og einnig hæstv. ráðherra sem hefur staðið sig frábærlega í þeirri orrahríð sem hefur staðið yfir við afgreiðslu málsins. En ég vil einnig þakka þeim fjölmörgu sjómönnum sem hafa haft samband og sent mér skilaboð og sagt að þetta þurfi að koma til vegna þess að þeir sjá auðvitað að þessi tvöfalda verðlagning er að fara fram hjá þeim. Síðast í síðustu viku kom fram að það hafi verið greiddar 270 kr. fyrir makrílinn í Færeyjum en ef íslensku sjómennirnir sem senda mér skilaboð landa honum hér heima þá fá þeir 74 kr. Þetta er auðvitað einn liðurinn í því að auka hér gagnsæi og hafa meiri sátt um greinina, þ.e. að það verði raunvirði sem verði andlag skattlagningar en ekki (Forseti hringir.) eitthvert verð eða jafnvel verð sem er búið til í samþættri vinnslu útgerðar í eigu sömu aðila.