156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:26]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er ótrúlegt að hlusta á öfugmælavísur hæstv. ráðherra og hv. stjórnarþingmanna hér. Það liggur alveg fyrir að við erum að fara inn í breytta tíma. Þessi ríkisstjórn er svo popúlísk að hún er algerlega tilbúin til þess að fórna öllu fyrir sína eigin sérhagsmuni. Það sem hv. stjórnarþingmenn og hæstv. ráðherrar segja er svo fullkomlega fráleitt og fyrir neðan allar hellur og það segir okkur það að þessi hæstv. ríkisstjórn er tilbúin til þess að fórna þjóðarheill ef það mun hugsanlega skila þeim einhverju í skoðanakönnunum. Það eru verstu fréttir dagsins.