156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:27]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hér greiðum við atkvæði um afgjald til þjóðarinnar af sameiginlegri auðlind. Við í atvinnuveganefnd höfum unnið þetta mál mjög vel. Ég skil vel áhyggjur margra af landsbyggðunum um að þetta gæti haft mikil áhrif á þeirra hag. Ég tel að við séum búin að gera þær góðu breytingar að það sé ekki ástæða til að hafa áhyggjur enda höfum við lagt til, og það liggur hér fyrir, að við gerum áhrifamat á þessu frumvarpi sem verður líka skoðað í framhaldinu og þrepaskipt innleiðing á því.

En það er holur hljómur hjá stjórnarandstöðunni þegar hún hefur talað hér í fjölda ræðna um að styðja við brothættar byggðir en leggur sig í líma við það að stöðva strandveiðifrumvarpið. (Gripið fram í: Ha?) (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Þetta er ansi mikil hræsni og holur hljómur sem hér er. En við höfum stutt við landsbyggðirnar með því að veita mikla afslætti fyrir litlar og meðalstórar útgerðir og ég tel að þetta sé gott frumvarp eins og það lítur út í dag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)