156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:29]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil koma hérna upp og þakka fyrir þá góðu vinnu sem hefur farið fram í þessu máli. Mikil og heiðarleg vinna hefur verið unnin. Ég vil þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra og hv. atvinnuveganefnd fyrir vinnuna og einnig vil ég þakka fólkinu í landinu fyrir öll samtölin, skilaboðin og hvatninguna í þessu máli. Hér er um sanngjarnt og réttlátt mál að ræða. Ég styð það heils hugar.