veiðigjald.
Frú forseti. Ég er óendanlega stolt af fólkinu okkar og af samstarfsflokkunum okkar. Stjórnarsamstarfið hefur einkennst af því að við höfum starfað sem einn samhentur þingflokkur sem stendur með almenningi. Við vinnum fyrir almannahagsmuni en ekki sérhagsmuni, eins og stjórnarandstaðan hefur bersýnilega sýnt með því að fella grímuna alla leið. Við göngum bjartsýn inn í sumarið og staðráðin í því að ljúka þeim stóru málum sem bíða okkar. Baráttan um réttlátt og sanngjarnt Ísland er rétt að hefjast og það erum við, ríkisstjórnin ykkar, sem munum í verki sýna að sú barátta er til þess að sigra hana. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)