156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:30]
Horfa

Heiða Ingimarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég stend hér í dag stolt dóttir sjómanns og stoltur landsbyggðarþingmaður, þingmaður svæðis sem hefur svo sannarlega fengið að finna fyrir því hversu sveltir innviðirnir okkar eru. Nú er tími til að breyta því, breyta kerfinu og huga að almannahag. Ég mun svo sannarlega greiða atkvæði með því.