156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:31]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum að gera breytingar, já. Þessi ríkisstjórn ætlar sér að gera breytingar. Hún ætlar að gera kerfisbreytingar eftir ládeyðu sem hér hefur ríkt svo árum skiptir. Það er kominn tími til þess að fara að breyta hér kerfum sem hafa ekki þjónað hagsmunum íbúa landsins. Ég fagna því svo sannarlega að þessi ríkisstjórn ætlar að taka á þeim kerfum sem hafa verið búin til utan um sérhagsmuni og nú ætlum við að fara að deila þeim þjóðarauði og þeim hagnaði sem hægt er að hafa af auðlindum þjóðarinnar til þjóðarinnar allrar. Það er kominn tími til að við séum ekki endalaust að hjakka í sama farinu og við keyrum upp úr hjólförunum og breytum þessu landi, íbúum landsins til hagsbóta.