156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:32]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég ætlaði nú ekki að segja meira um þetta mál að sinni. Ég veit að hæstv. ráðherrum liggur á að sleppa héðan úr þinginu, komast út í sólina. Reyndar fengum við smá forskot á sæluna hvað það varðar þegar við fylgdumst með þeim rölta hér um miðbæinn saman í sólinni með ljósmyndara og kvikmyndatökumann með sér til að sýna fram á væntanlega samstöðuna, huga að ímyndinni. Allt í lagi með það, allt í góðu með það. Ég veit að þetta gengur allt út á það. En þegar hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir kom hér upp og reyndi að kenna hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar um klúðrið í strandveiðimálinu þá gat ég ekki á mér setið. Strandveiðarnar byggja á frumvarpi frá þessari ríkisstjórn sem stjórnarandstaðan varaði við að myndi ekki virka. Ekki nóg með það heldur hafa þingmenn stjórnarandstöðunnar reynt að ýta þessu máli ofar á dagskrána. Hv. þm. Bergþór Ólason lagði sérstaklega fram (Forseti hringir.) tillögu um að breyta dagskrá til þess að þetta mál kæmi efst á dagskrá. Það var þessi ríkisstjórn sem fórnaði strandveiðimálinu. (Félmrh.: Við gætum klárað það í dag, hv. þingmaður, ef þú vildir. (Utanrrh.: Eigum við að klára þetta bara?))

(Forseti (ÞSv): Forseti biður um hljóð í salnum og biður hæstv. ráðherra að hafa hemil á sér, báðum megin. Hljóð í salnum.)