156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:34]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég ætlaði svo sem ekkert að koma upp hér í dag út af þeim hörmungum sem hafa gengið yfir á síðustu dögum og vikum en þetta sem kemur fram í máli hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur (Gripið fram í: Rafneyjar.) — hún gat ekki hamið sig. (Gripið fram í.)

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn er með orðið.)

Já. (Gripið fram í: … ekki uppnefna …)(Gripið fram í: Vá.)(Gripið fram í.) Reyndu að hemja þig, hæstv. ráðherra, reyndu einu sinni. Það væri ánægjulegt ef það tækist.

Frumvarpið kom seint fram, nefndarálitið kom út úr atvinnuveganefnd 26. júní. Það liðu 12 dagar þangað til umræða fór fram í þingsal og málinu er kippt af dagskrá eftir örfáar klukkustundir. Örfáar klukkustundir. Það var nú allur viljinn eða áhuginn hjá stjórnarliðum að ræða þetta mál. Þetta er algjörlega fullkomlega á ábyrgð stjórnarliða hvernig er komið fyrir strandveiðum. Það var sett fram reglugerð hér í apríl og þau áttuðu sig á því, stjórnarliðar, háttvirtir, (Forseti hringir.) frú formaður, frú forseti, að þetta var ekki að ganga, þessi reglugerð. Þá hefst einhver nauðvörn um eitthvað sem var reyndar enginn vilji til að klára með nokkrum hætti eins og sagan segir. Ég hvet fjölmiðla (Forseti hringir.) til að skoða þessa sögu og þessar hörmungar, hvernig hefur verið staðið að málum í því máli eins og mörgum öðrum.