veiðigjald.
Frú forseti. Það eru líklega fáar þjóðir í heiminum sem eru jafn nátengdar hafinu eins og Íslendingar og tilfinningalega tengdar hafinu, og ekki bara tilfinningalega heldur hefur hafið og hafsvæðin í kringum okkur haft áhrif á tungumálið okkar. Við tölum eftir sjávarföllum, við tölum um að leggja árar í bát og þeir fiska sem róa og einhvern tímann var sagt að lífið væri saltfiskur. Það var öll þjóðin sem barðist í þorskastríðunum fyrir landhelginni okkar og þegar kvótakerfið var sett á þá var það til góðs. En það hafði hliðarverkun, þá aukaverkun að það klauf þjóðina, það bara gerði það. Það högnuðust margir mjög vel en sumir ekki og fleiri heldur en þeir sem högnuðust. Þessi aðgerð sem við erum að standa fyrir hér (Forseti hringir.) er liður í því að sameina þjóðina aftur og þess vegna (Forseti hringir.) styð ég þetta. — Takk fyrir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)