156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:38]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Bara til að undirstrika, af því að ég heyri að hér er að komast á samhljómur í þingsal: Eigum við ekki að nýta þennan samhljóm í þágu strandveiða og klára málið annaðhvort í dag eða á morgun? (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Við buðum það á laugardaginn. Við fengum nei frá stjórnarandstöðunni. Nýtum tækifærið, nýtum daginn (Gripið fram í.)og förum í strandveiðimálið og klárum það. Ekki koma bara hingað upp í stól og segja að það hafi verið stoppað. Gerum þetta saman. Við erum tilbúin. Það er alveg ljóst að ríkisstjórnarflokkarnir eru tilbúnir. Hvað segið þið? Leggjum niður þessar baráttuaxir sem eru úti um allt, klárum alla vega þetta mál annaðhvort í dag eða á morgun. Ég undirstrika: Við í ríkisstjórnarflokkunum erum tilbúin. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)