156. löggjafarþing — 88. fundur, 14. júlí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Forseti. Hér leggur minni hluti atvinnuveganefndar til einföldun sem snýr að því að hætta við að taka frystiskip út og halda inni 10% lækkun á mati aflaverðmætis. Það eru greidd atkvæði um lið a og b í breytingartillögu minni hlutans saman og báðar snúa þær tillögur að meðferð frystiskipa.