156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:42]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Hér er lagt til að íslenska sumargotssíldin verði meðhöndluð með sama hætti og loðna enda er allsendis fráleitt að tengja verðmat vöru sem ekki er seld á norskum markaði, eins og hér um ræðir, við norsk verð. Það ætti að duga að segja þetta upphátt til að þingmönnum verði ljóst hvers lags fáránleika frumvarpið leiðir fram. Ég sé að ég hef ekki náð eyrum stjórnarliða, það blasir við á töflunni. En hér er sem sagt lagt til að til að mynda íslenska sumargotssíldin verði meðhöndluð með sama hætti og loðna í ljósi þess að ekki er markaður fyrir hana annars staðar en hér heima.