veiðigjald.
Frú forseti. Hér leggur minni hluti atvinnuveganefndar til að verðmat á makríl miðist við 50% afslátt af hinu svokallaða norska verði, sem er eilítið minni afsláttur heldur en skýrsla Norges Sildesalgslag leiðir fram þegar búið er að bera saman allar sölur á tilteknu árabil. Hér er hóflega gengið fram með því að leggja til 50% afslátt þannig að menn færist a.m.k. nær raunheimum í þeim galskap sem hér er lagður til og því sem blasir við að muni fara dómstólaleiðina. Og ég er efins um að hæstv. atvinnuvegaráðherra verði þar með öflug vopn í vopnabúri sínu þegar kemur að vörnum í þessum efnum.