veiðigjald.
Frú forseti. Hér eru greidd atkvæði um varatillögu minni hluta hv. atvinnuveganefndar. Þetta snýr að verðlagningu makríls og við verðum að hafa í huga að meiri hluti atvinnuveganefndar, hæstv. ráðherra þar með, geri ég ráð fyrir, og ríkisstjórnin, eru búin að gangast við því að þetta sé ekki sama varan, makríll veiddur hér af íslenskum skipum og landað á Íslandi og hin norska. Það er búið að gangast við því með 20% afslætti sem kemur fram í breytingartillögu sem kom fram frá meiri hlutanum á milli 2. og 3. umræðu þannig að það er frá, það prinsippatriði. Þetta er ekki jafn gild, jafn verðmæt vara. Hér er lagt til, eftir að 50% afslátturinn var felldur hér rétt áðan, að horft verði til þess að afslátturinn verði 40%. Þetta nær því ekki að ná mati Norges Sildesalgslag en þetta færir okkur þó ívið nær heldur en stefnir í miðað við 20% afsláttinn sem hér er búið að ramma inn.