156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:46]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Hér er lagt til að við mat á þorski og ýsu verði horft annars vegar til ástands afla, hvort hann er slægður eða óslægður við löndun, og hins vegar er hér lagt til að miðað verði við 90% verðmat af verði á fiskmörkuðum. Það er sem sagt, eins og segir hér, með leyfi forseta:

„Fiskistofa skal reikna aflaverðmæti fyrir þorsk og ýsu og birta vegið meðaltalsverð slægðs og óslægðs afla á fiskmarkaði á 12 mánaða tímabil sama ár og reiknistofn miðast við. Fiskistofa skal við útreikninginn notast við upplýsingar frá Verðlagsstofu skiptaverðs og miða við 90% af verði á markaði eins og það birtist hjá Verðlagsstofu skiptaverðs“— o.s.frv.

Hérna er lagður til 10% afsláttur og hann er rökstuddur með þeim hætti að fiskmarkaðsverðin eru jaðarverð. Þarna eru um 10–15% aflans að fara í gegn. Mikið af honum er stærri fiskur heldur er svona heilt yfir í samþættu vinnslunum þannig að verð er hærra þarna (Forseti hringir.) heldur en raunveruleikinn leiðir út. Hér er því verið að reyna að færa andlag skattlagningar nær raunveruleikanum heldur en frumvarpið gerir.