veiðigjald.
Frú forseti. Hér er lagt til af minni hluta hv. atvinnuveganefndar að þessi tröppun svokallaða vari í tvö ár, eins og meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til, en að prósenturnar verði örlítið hærri hvað afslátt varðar þannig að það verði 17% afsláttur fyrsta árið og 10% afsláttur annað árið. Síðan taki kerfið við með öllu því sem það býður upp á. Þannig að það verði 17% afsláttur fyrsta árið, 10% afsláttur annað árið, samanborið við 15% og 5%, eins og tillaga meiri hluta hv. atvinnuveganefndar leiðir fram.