156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:51]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Eins og sést þá styður þingið allt breytingartillögu þó að hún gangi of skammt. En meiri hlutinn var að fella tillögu hér áðan frá minni hlutanum sem hefði hugsanlega verið einhvers konar miðlunartillaga, sem hefði hugsanlega getað leitt málið í jörð. Í stað tveggja ára, fjögurra ára þá er til að mynda hægt að fara þrjú ár. Í stað þess að vera að færa til einhverjar eina og tvær prósentur þá hefði verið hægt að mætast á miðri leið. En ríkisstjórnin ákvað að beita 71. gr. til að þvinga sína leið í gegn en kemur síðan og gefur aðeins eftir vegna þess að þau eru hrædd um að minni hlutinn hafi rétt fyrir sér og sveitarfélögin í landinu hafi rétt fyrir sér. Aðeins of skammt, aðeins of lítið, en við styðjum það samt.