veiðigjald.
Frú forseti. Eins og hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson kom inn á þá styðja allir þingmenn sem eru hér í salnum þessa breytingartillögu. Þó að hún gangi að mati okkar í minni hlutanum of skammt þá er hún skárra en ekkert í ljósi þeirra áhrifa sem frumvarpið leiðir fram á landsbyggðina og þau fyrirtæki sem í þessum geira starfa og þjónusta hann. Hér er lagt til að það verði 15% afsláttur fyrsta árið og 5% afsláttur annað árið. Ég hef enn ekki áttað mig á því hvers vegna ríkisstjórnin ákveður að ganga jafn skammt og raunin er, enda hefur stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi gefið út sérstaka yfirlýsingu eftir að þessar tölur komu fram og lýsir undrun yfir því hversu skammt er gengið með þessari breytingartillögu. En hún er, eins og ég segi, skárra en ekkert.