veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég styð þetta eindregið. Hér er verið að tala um m.a. samræður sem við áttum í þinglokasamningum. Já, við buðum nefnilega heilmikið, og það er gott að hér komi stjórnarandstöðuþingmenn og staðfesti það í ljósi heildarsamhengis, til þess að við gætum fengið strandveiðarnar inn, til þess að við gætum fengið samning Sameinuðu þjóðanna inn, til þess að við gætum fengið útlendingalöggjöfina inn, búvörulögin, aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi. En þessu hafnaði stjórnarandstaðan á sínum tíma. Þið höfnuðu þeirri tillögu og það var alveg skýrt af okkar hálfu að fyrst að það var, þá mörkum við okkur aðra leið. Það sem kemur mér á óvart, virðulegur forseti, af því að það er verið að upplýsa eitt og annað í öllu þessu ferli, er af hverju stjórnarandstaðan er svona hrædd við að birta raunverulega eigin tillögur sem hún lagði á borðið, um að þau ætluðu og vildu veita útgerðinni viðvarandi afslátt af veiðigjöldum, af hverju þau vildu ekki hrófla við kerfinu heldur leyfa útgerðinni áfram að ákveða viðmiðið við veiðigjaldið. Þetta er auðvitað ekki boðlegt. Það er verið að reyna að endurrita söguna af hálfu stjórnarandstöðunnar. (Forseti hringir.) Þess vegna segi ég já við þessum breytingartillögum af hálfu atvinnuveganefndar og ég segi auðvitað já á eftir við málinu öllu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)