156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:55]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Þetta er klárlega til bóta. Við í minni hlutanum höfðum ítrekað talað fyrir því að það væri skynsamlegt að gera slíka úttekt og fá til þess starfshóp hagaðila, fyrirtækjanna sjálfra, sveitarfélaganna í landinu, já og Byggðastofnunar. En meiri hlutinn treysti sér ekki til þess samtals og felur Byggðastofnun að gera það. Skref í rétta átt. Hitt hefði verið betra. En því miður munu niðurstöðurnar liggja fyrir fullseint, í það minnsta að mati sveitarfélaganna. En eigum við ekki að segja skref í rétta átt, skárra en ekkert.