156. löggjafarþing — 88. fundur,  14. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:56]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Hér eru greidd atkvæði um einhvers lags eftirlitsskýrslubeiðni meiri hluta atvinnuveganefndar. Við höfðum ítrekað rætt mikilvægi þess að það yrði sett strax af stað greiningarvinna og eftirlit og utanumhald gagnvart þeim áhrifum sem frumvarpið kallar fram. Hér er gengið mun skemur en æskilegt er og þingflokkur Miðflokksins mun sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu. Þetta er aftur, eins og í síðustu breytingartillögu meiri hluta hv. atvinnuveganefndar, skárra en ekkert en fjarri því að vera á þeim stað sem skynsamlegt er. Ég man í fljótu bragði ekki eftir að stjórnarmeirihluti hafi þó gengist við mikilvægi þess að meta strax áhrif af frumvarpi sem var jafn lítill áhugi á og raunin var að meta áhrifin af áður en það var lagt fram hérna í þinginu.