veiðigjald.
Virðulegur forseti. Það er ljóst að þetta frumvarp verður senn að lögum frá Alþingi. Ég vil bara hér undir lok þessarar umræðu allrar halda því til haga að þegar á reynir verður minnt á og rifjað upp með hvaða hætti málið vannst í gegnum þingið. Það er búið að vara stjórnarliða við ítrekað með öllum þeim ráðum sem við kunnum en það hefur ekki haft meiri áhrif en þetta. Breytingartillögur sem voru samþykktar áðan eru í raun hálfgert smælki, plástur á svöðusár sem frumvarpið mun kalla fram á landsbyggðinni hjá þeim fyrirtækjum, sérstaklega litlum og millistórum, sem í greininni starfa, þeim fyrirtækjum sem sinna nýsköpun og þróun í þessum efnum og auðvitað fyrst og fremst fólkinu sem vinnur í þessari grein, allt til þess að uppfylla og friðþægja frekjukast ríkisstjórnarflokkanna.